fbpx

Óvígð sambúð

Fjárskipti við slit óvígðrar sambúðar.
Engar heildstæðar reglur eða lög gilda um óvígða sambúð þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir henni á nokkrum stöðum í lagasafninu. Hvað varðar eignaskipti við sambúðarlok óvígðrar sambúðar hafa þó mótast nokkrar reglur í dómaframkvæmd sem hægt er að byggja á. Þótt meginreglan sé sú að þinglýst skráning eigna ráði við sambúðarslit þá eru til dæmi um að dómstólar hafi viðurkennt að fasteign skuli teljast sameign að jöfnu eða í öðrum hlutföllum þó þinglýstri skráningu sé háttað öðruvísi.

Af dómaframkvæmd má þannig sjá að við sérstakar aðstæður er helmingaskiptum beitt við uppgjör fjárskipta sambúðarfólks eða í öðrum hlutföllum. Opinber skráning fasteigna girðir því ekki fyrir að annað eignarhlutfall teljist rétt miðað við framlög aðila til fasteigna takist sönnu um það. Hvílir sönnunarbyrðin á þeim aðila sem telur sig hafa eignast hlutdeild í fasteign sem skráð er á hinn aðilann. Af þessu leiðir að hægt er að gera tilkall til hlutdeildar í eign sem samsvarar fjárframlögum til eignamyndunar fasteignar sem viðkomandi hefur tekist sönnum um.

Nýlegar færslur